Á Djúpavogi
má finna öflugt og fjölbreytt íþróttastarf. Þar er líka aðstaða til íþróttaiðkunar mjög góð og er vel nýtt af Ungmennafélaginu Neista sem og öðrum íbúum á Djúpavogi. Á veturnar fara flestar Neistaæfingar fram inni í íþróttamiðstöð Djúpavogs og reynir félagið eftir fremsta megni að bjóða uppá íþróttastarf fyrir alla. Síðasta vetur var megin áhersla lögð á fótbolta, frjálsar, badminton, körfubolta og blak. Aðstaða til sundiðkunar er til fyrirmyndar á Djúpavogi og hefur Neisti alltaf reynt eftir fremsta megni að halda úti sundstarfi í einhverri mynd. Þá þykir fótboltavöllurinn á Djúpavogi eða Neistavöllur vera algjörlega frábær og er hann líka táknrænn fyrir samheldni íbúa á Djúpavogi og sögu Ungmennafélagsins Neista.
Æfingar neista
Hér má sjá æfingatöflu Neista sumarið 2025
fréttir
-
09jún
Nýr þjálfari Neista
Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að Neisti hefur nú ráðið nýjan þjálfara til starfa og það er enginn annar en Helgi Ásgeirsson. Helgi sem er oft kallaður Moli, er reynslumikill knattspyrnuþjálfari og erum við einstaklega ánægð með að