Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að Neisti hefur nú ráðið nýjan þjálfara til starfa og það er enginn annar en Helgi Ásgeirsson. Helgi sem er oft kallaður Moli, er reynslumikill knattspyrnuþjálfari og erum við einstaklega ánægð með að fá hann til okkar í Neista. Helgi hefur setið fjölmörg námskeið í sínu fagi og lokið öllum tilskyldum réttindum sem knattspyrnuþjálfari. Hann hefur starfað sem knattspyrnuþjálfari yngri flokka í áraraðir við frábæran árangur og mjög góðan orðstír.

Helgi er ekki ókunnugur á Djúpavogi en síðasta sumar hélt hann námskeið í fótbolta fyrir krakka á Djúpavogi auk þess að eiga fjölskyldu hér á staðnum sem rekur rótgróið fjölskyldufyrirtæki í hjarta Djúpavogs.

Æfingar sumarsins með Mola hefjast á morgun, 10. júní. Á síðunni má sjá æfingatöflu sumarsins og það má svo sannarlega segja að það eru spennandi tímar framundan hjá Neista.

Velkominn á Djúpavog Moli!

Post a Comment

Close

Hér kemur texti

Opnunartímar

Mánudögum – Föstudögum
09:00 – 17:00

Samfélagsmiðlar
About